Hugrenningar (hugsanlega ónetvænar samt)
Nú er Ísland farið til fjandans, það er löngu farið til fjandans en einhvernvegin þá eru ný og ný helvíti alltaf að koma í ljós. Ráðmennirnir eru ekki að standa sig, almúgurinn er að missa sig og fólk og fyrirtæki fara á hausinn til hægri og vinstri.
Undanfarna mánuði þá hefur verið mikil veikindahrina í gangi meðal ráðamanna, þeir fá krabbamein, hjartaáföll, ýmsar sýkingar ofl. Það fær mann (amk mig) til að velta því fyrir mér hvort að karma hafi einhver áhrif á? Er það bara tilviljun að þegar allt fer niður þá verða ráðamennirnir veikir í stríðum straumum?
Ekki það að ég sé að efast um að allt þetta fólk sé veikt, ég óska þeim fulls bata. Mér finnst súrt að það virðist vera eina leiðin til að losna við rotin epli sé bókstaflega að skera þau upp og sýna fram á að þau sé í alvörunni rotin. Það versta er eiginlega að Maðurinn sem hefði átt að segja upp fyrstur allra situr enn svo fast að maður efast um að hin versta plága gæti fengið honum hnikað. Ég hugsa að ef maðurinn dræpist þá væri samt erfitt að losna við hann úr stöðunni.
Anyway ég óska öllum veikum ráðamönnum þjóðarinnar fullum bata. Ég vona líka að það fari einhverntíman að koma einhverjar jákvæðar fréttir frá Íslandi – þetta er farið að verða svoldið leiðingjarnt.
4 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Ragna, January 23, 2009 @ 07:10
26. mars eða þar í kring koma væntanlega góðar fréttir frá Íslandi (þó það tengist kannski lítið landi og þjóð
)
By ella, January 23, 2009 @ 07:54
Umræddur fékk nú sinn skamt um árið og var lengi á spítala. Síðan hefur hann bara verið í rólegheitunum í seðlabankanum. En góðar fréttir??? Blessuð vertu, héðan eru bara góðar fréttir, til dæmis verður rétt bráðum alveg magnað þrrablót og svona:) Svona greind stúlka veit að það þykir ekki taka því að nefna það sem er allt í lagi. Á höfuðborgarsvæðinu reis bólan hæst og þar varð hvellurinn stærstur.
By Elva, January 23, 2009 @ 13:52
Ég var einmitt að pæla þetta svona. Ótrúlega táknrænt að þau skulu bæði hafa greinst með æxli og hennar er góðkynja (ekki eins djúpt í kúknum?) og hans illkynja.
Ég verð nú samt að viðurkenna að ég finn agalega til með manninum þó að hann hefði nú átt að vera búinn að segja fyrirgefðu og vera farinn fyrir löngu.
Í sambandi við hinn þrákálfinn þá vona ég að hann fari nú bara að snúa sér að fluguhnýtingum eða eitthvað. Þegar ímynd manns í Spaugstofunni hefur breyst frá því að vera spaugsamur og svolítið illkvittinn leynikóngur, yfir í geðveikling með keðjusög, er sennilega kominn tími á smá naflaskoðun.
By Edda Rós, January 23, 2009 @ 15:54
Já sú sem er ekki jafn djúpt í kúknum fær góðkynja, sá sem er dýpstur lagðist inn á sjúkrahús fyrir svoldlu síðan… Það hefði kannski verið best ef hann hefði dregið sig í hlé þá?
Það versta er, held ég, að ég held að það séu sárafáir hæfir einstaklingar tilbúnir í að stjórna landinu – jafnvel þó að það væri kosningar á morgun.