Næsta próf
Jæja þá er maður að gíra sig upp í að taka annað próf. Seinasta próf var svokallað project exam, semsagt prufað uppúr ákveðnu verkefni sem við gerðum sérstaklega með það í huga að það ætti að prófa í því, en þetta próf er kallað subject exam. Þar sem að námið skiptist í 4 svið, interaction – communication – visulisation – organisation, þá er sér próf uppúr þessum sviðum. Hver nemandi fær bara eitt svið sem hann er prófaður uppúr og við fengum að vita sviðin okkar í morgun – en prófið er á fimmtudaginn.
Ég fékk interaction, sem af flestum er talið lang erfiðasta sviðið. Hin þrjú sviðin eru kjaftafög, þú getur alltaf kjaftað þig frá öllu með því að segja bara nógu oft user-testing og target-audience. Þau svið eru að mestu huglæg, þó að vissulega liggi einhver fræði á bak við. EN interaction er kóðunin og svoleiðis stöff. Þú getur ekki sannfært php skránna að hún eigi að gera svona og svona við gagnagrunninn ef að þú getur ekki skrifað skipanirnar rétt.
Ég er ekkert rosalega stressuð yfir þessu, hefði svosem ekki verið svo stressuð ef ég hefði fengið eitthvað af hinum sviðunum þrem. Það eina sem böggar mig er að kennarinn sem er prófdómarinn er ekki vinur minn, eiginlega bara allt annað en vinur minn. Ég er samt núna fegin að ég kvartaði ekki opinberlega yfir honum í vetur þegar hann sagðist ekki ekki ætla að hjálpa mér ef ég ætlaði að halda áfram að gagnrýna skólann.
Það sem að böggar mig miklu meira en prófið er að ég hef sofið illa seinustu nætur (átt erfitt með að sofna og vaknað snemma) og er svo í þokkabót að kafna í kvefi.
3 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By SIlla, January 21, 2009 @ 13:52
Gangi þér vel í prófinu
By Ragna, January 22, 2009 @ 05:21
ég er farin að verða agalega spennt yfir því hvernig þér gekk í þessu prófi, ertu ekki að verða búin??
By Edda Rós, January 22, 2009 @ 07:14
Ég fékk 10 (b), það er ágætt. Þetta var samt ömurlegt próf þó að einkunnin sé ekki svo slæm. Ég skrifa örugglega um það á eftir.