Bólustrákur
Hæhæ
Ég er bólustrákur, ég er nefnilega með hlaupabóluna. Hún byrjaði sem ein auka brjóstabóla (aukageirvarta) en núna er ég sko með bólur út um allt. Ég er með bólur í rassinum, á pungnum, inní báðum eyrunum (og á bak við þau), undir ilinni, á puttunum, í hársverðinum osfr. Ég er með bólur alls staðar. Allra mestu bólurnar eru þó á rassinum (ath ekki í rassinum heldur á rassinum). Þar er ég bara einsog hraun, minnst er af bólum á bakinu og á fótunum. Bólurnar pirra mig ekki mikið, mér finnst þær samt kitla mig svolítið svo að mamma keypti krem í apótekinu til að setja á bólurnar. Þetta er ekki svona bleikt krem einsog mamma þekkir frá Íslandi heldur er þetta hvítt í spreybrúsa. Ég er þessvegna hvítflekkóttur og þarf að vera berrassaður heillengi á meðan kremið þornar alveg. Svo sá mamma að það er nánast ómögulegt að þvo þetta krem úr hárinu á mér bara með vatni svo að hún þarf að kaupa sjampó fyrir mig.
Ég veit að ég er veikur en mér líður ekkert illa, ég er ekki með neinn hita, ég er glaður og hress. Mér leiðist svolítið mikið, pabbi er líka veikur (með flensu) og mamma þarf að læra mikið, það væri gaman að komast bara í leikskólann og hitta krakkana. Eða amk að fara út og leika mér, mamma ætlar nú að fara með mig eitthvað út á morgun þó að ég sé örugglega bráðsmitandi ennþá.
Ég er búin að horfa mikið á teiknimyndir, of mikið segir mamma, svo keypti mamma kennaratyggjó svo að ég er búinn að vera að teikna og klippa myndir til að skreyta veggina okkar, mamma bjó til leir handa mér og ég leiraði aðeins. Ég var aðalega að leira litla bolta handa barninu hennar Valdísar, ég er líka búinn að vera duglegur að fara í bað. Mér líður vel í baðinu en mig klæjar mest þegar ég kem uppúr því.
Mamma segir að það séu bara 5 vikur (ekki 6 einsog hún hélt) þangað til að við förum til Íslands. Við ætlum að fara í flugvélina og fljúga lengi, lengi og svo komum við til Íslands. Það verður sko rosalega gaman, ég ætla að fara aftur og sjá tröllið undir brúnni (sem ég sá í sumar þegar ég fór í Vaglaskóg með Bobbu ömmu og Steina afa (og mömmu reyndar)).
Jæja heyrumst seinna
Hrafnkell bólustrákur
3 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Valdís, February 28, 2009 @ 08:19
Svakalegt er það að hafa svona mikið af bólum, Hrafnkell minn. Mér þykir voðalega vænt um að þú skulir vera að búa til hluti handa barninu, það verður örugglega mjög hrifið af því að sjá þig þegar þú kemur til Íslands.
By Ragna, February 28, 2009 @ 09:12
Æji hvað það er gott að vita að þú höndlir þessa hlaupabólu betur en ég, ég man ennþá hvað mér fannst þetta vont.
Ég hlakka til að fá að hitta þig eftir 5 vikur
By Bobba amma, February 28, 2009 @ 11:41
Vonandi verður þú fljótur að verða hess og laus við bólurnar. Kannski finnum við annað tröll því að það er kannski erfitt að leita að tröllinu á veturna.