Sniglaveisla
Ég hef, undanfarna mánuði, átt í stríði við laumusniglana í fiskabúrinu mínu. Einhverntíman kom nefnilega einhver óvelkominn snigill heim með nýrri plöntu (sennilega) eða nýjum fisk (ósennilega) og sá hefur heldur betur komið sér vel fyrir og fjölgað sér.
Í fyrstu þá reyndi ég bara að tína upp þá sem ég sá, svo fór ég og splæsti í 2 sniglaætum. Sniglavandamálið snarminnkaði þegar æturnar komu en hefur náð, engu að síður, að stigmagnast og eru býsna margir sniglar núna. Svo að ég ákvað að græja sniglagildru. Þá tók ég glerflösku (undan ógeðishóstasaftinni sem enginn vildi nota), inní hana setti ég svo gúrkusneið. Þetta virkar mjög vel á sniglana, þeir koma hlaupandi (haha svona einsog sniglar hlaupa) og setjast á gúrkuna. Vandamálið er að sniglaæturnar eru líka hrifnar af gúrku og koma því líka og leggjast á beit. Þar af leiðandi fá þeir sniglar sem nenna ekki í gúrkuát að vera í friði
Semsagt ég held að ég verði annað hvort að kaupa sniglaeitur (sem gæti eitrað fyrir einhverju fleira í búrinu, td skrautsniglunum mínum) eða fleiri sniglaætur. Hmmm, mér er svosem sama þó að það séu nokkrir laumusniglar en þetta er aðeins of mikið núna.
EN annað þá er útskriftin mín föstudaginn 26. júní.
2 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Ragna, February 4, 2009 @ 05:54
Oh, hvað ertu að gera þetta flókið?? Núna, ef ég ákveð að fara á Hróaskeldu, þá væri náttúrulega miklu sniðugra að koma nokkrum dögum fyrr og mæta í útskrift(warm-up byrjar 28. júní og festivalið sjálft er 2. – 5. júlí), en þá þarf ég að taka mér svo langt frí!
Annars er bara búið að staðfesta 3 hljómsveitir (Coldplay, Slipknot og Madness (sem ég hef aldrei heyrt um))…
By Elva, February 4, 2009 @ 08:10
Hahahaha!! Ragna er lítil! Hehemm eða ég svo gömul. Væri til að sjá Madness og Coldplay en Slipknot er ekki alveg minn tebolli.
Þessi sniglar eru víst algengt vandamál þó að okkur hafi tekist að drepa gælusnigilinn okkar og afkomanda hans. Þeir þrífa víst búrið en það eru nú takmörk fyrir öllu!