Spennandi tímar

Þessi önn snýst aðalega um samvinnu við alvöru fyrirtæki. Fyrsta vikan á önninni fer því í það að komast í tengsl við fyrirtæki. Í þessari viku hafa nokkur fyrirtæki komið í skólann og lýst því hvað þau eru að gera og hvað þau vilja að við gerum – sum hafa komið virkilega á óvart og önnur hafa valdið manni ótrúlegum vonbrigðum.

Við, í hópnum mínum (sem er ég, Michelle og Kirsten – Jeffrey og Morten fóru til Cumbria og eru þess vegna ekki memm lengur), erum búin að hafa samband við 5 fyrirtæki. 2 sem við höfum verulegan áhuga á, 2 sem gætu verið ok og 1 sem væri örugglega mjög áhugavert en er líka alveg rosalega mikil eftirspurn eftir (ætli það óski ekki amk helmingurinn af 4ðu önn eftir að komast að hjá þeim). Það jákvæða er að þessi 2 sem við höfum áhuga á eru þau einu sem hafa svarað okkur strax. Þau eru Startour og JDS-Architects, semsagt eitt gamalt og rótgróið ferðamálafyrirtæki (það stærsta í DK) og eitt ungt arkitektafyrirtæki í mikilli framsókn (hannar td nýja skýðahoppipallinn í Osló – Holmenkollen).

Vonandi kemur svo í ljós fyrir helgi, já eða um helgina, hvort við fáum annað þessara fyrirtækja. Það hljómar amk mjög spennandi, ekki bara að vera að vinna með alvöru fyrirtækjum, að vera að vinna með fyrirtækjum sem eru í alvörunni þekkt á sínum sviðum. Ef það, sem við gerum, er notað gæti það skilað sér í mjög góðum dæmi til að hafa á CV hjá sér.

Annars hvað varðar Hrafnkel þá fórum við með hann til læknis á þriðjudaginn. Hægra eyrað hjá honum var stokkbólgið og mjög rautt en það vinstra alveg fínt þar af leiðandi sagði læknirinn að þetta væri örugglega bakteríueyrnabólga (þar sem að vírusar vilja víst dreyfa sér meira og vera í báðum eyrunum, sérstaklega þar sem þetta var orðið frekar slæmt) og þess vegna fékk hann pensilín og verkjastíla. Pensilínið er auðvitað viðbjóðslega vont á bragðið, ég myndi segja eyrnamergur falinn í sykur-gerfi-ávaxtabragði. Við erum samt sammála um að hann verði að taka lyfið sitt því að það séu lítil skrímsli í eyranu sem vilji bara meiða eyrað og það bara þurfi lyfið til að drepa þessi skrímsli. Lyfið fer nefnilega úr mallanum og upp í eyrað og drepur skrímslin, það sé ekki nóg að berja sig í hausinn með Svampi Sveinssyni (bangsa) – hann er bara ekki skrímslabani. Þar fyrir utan eru smá verðlaun fyrir að vera duglegur að taka lyfið sitt.

Hann virðist reyndar ennþá finna til í eyranu og það er mjög viðkvæmt svo að hann fer ekkert í leikskólann fyrr en á mánudag. Þeir voru saman heima feðgarnir í dag, Hrafnkell segir að það hafi verið gaman en mér skilst á pabbanum að pjakkurinn hafi farið nokkrum sinnum fram til að “bíða eftir að mamma komi heim”. Ekki skrítið að barnið sé háð mér svosem.

3 Comments

  • By Elva, February 5, 2009 @ 14:21

    Greynilega kurteis drengurinn og vill ekki að pabbi komi illa út ;)
    Það er samt gott að eyrað sé að skána og skrímslaveiðarnar gangi vel.
    Vonandi náið þið agnhaldi í þessi fyritæki.

  • By Álfhildur Eiríksdóttir, February 6, 2009 @ 10:30

    Vonandi færðu spennandi verkefni :) . Varðandi svona pensíllinmixtúrur þá gafst ég fljótt upp á þeim og slagsmálunum sem þær ollu og kenndi börnunum að gleypa töflur

  • By Edda Rós, February 8, 2009 @ 11:30

    Hurru núna er hann orðinn alveg sáttur við pensillínið, minnir meira að segja á það þegar hann heldur að það sé kominn tími á það. Ég gæti trúað að það sé eitthvað svona nett ávanabindandi í þessu lyfi, amk sagði læknirinn að það væri vont á bragðið en hann (Hrafnkell) yrði fljótur að læra að líka það – og það hefur algerlega staðist.

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.