Undarlegur email
Ég fékk svoldið undarlegan tölvupóst um daginn. Þar sem að ég er greinilega bæði gömul og barnaleg þá ætla ég að birta samtalið í heild sinni hérna – þar sem að ég er ekki alveg heimsk samt þá ætla ég ekki að birta neinar upplýsingar um það hvað greyið heitir.
Fyrst fékk ég þetta:
“Hææ…
Exxxx heiti ég, mig langar að spurja þig hvort þú hafir lesið min ven thomas ??
Ef svo er, væriru nokkuð til í að segja mér frá henni, allvega fyrstu 10 kaflana
hehe”
Svo svaraði ég:
“Ég hef reyndar lesið hana en hver í ósköpunum ert þú og af hverju ætti ég eiginlega að vera að segja þér frá henni?”
Þá kom:
“Fyrirgefðu! En eins og ég sagði fyrst, þá heitir ég Exxxx og vegna nokkurra smáatriða þá næ ég ekki innihaldinu úr bókinni
og var að leita að einhverjum glósum á netinu og þannig fann ég síðuna þína á leit.is! það eina sem mig vantar er að vita
hvort þú gætir sagt mér í stuttu máli innihaldið í köflum 1-10!!”
Og aftur svaraði ég:
En af hverju í ósköpunum ætti ég að hjálpa einhverri stelpu, sem ég þekki ekki rassgat, svo að hún sleppi við að læra heima?
og þá kom þetta:
7 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Ragna, February 16, 2009 @ 01:49
haha já, alveg stórundarleg gella! Mér finnst líka svolítið fyndið að þegar þú spyrð hver hún sé eiginlega þá segir hún bara nafnið sitt aftur, eins og það skýri allt
By Valdís, February 16, 2009 @ 02:13
Þetta er alveg precious! Hversu lélegur getur maður annars verið í dönsku, ef maður telur sig, nýbúinn að lesa bókina, vita minna um hana en einhver sem las hana fyrir guð má vita hversu mörgum árum síðan? Þætti líka gaman að sjá skilgreiningu þessarar manneskju á orðinu “barnaleg”.
By Inga litla, February 16, 2009 @ 02:54
Hehe já dáldið spes..
Hverjum dettur þetta í hug..
Ekki það, maður hefði kannski spurt einhvern sem maður þekkir og er nýbúin að lesa bókina út í svona, en já, ég las þessa bók á sínum tíma, og vá man ekkert nema það að tommi var örugglega hommi, hvað þá eitthvað úr 10 fystu köflunum.. Líka snilld hvernig hún svarar..
En já annars kærar kveðjur
By Elva, February 16, 2009 @ 08:33
Þú ert nú meiri vonda konan að standa svona í vegi fyrir upplýsingu þessarar ungu menntakonu. Heheh…
“Fyrst þú ert svo gömul og barnaleg” skemmti Jorrit sérstaklega þegar ég truflaði hann við sinn lærdóm og ég átti að skila að stúlkan hafi algerlega náð þér eftir annan tölvupóstinn frá þér. Það hafi tekið hann alveg heila viku að fatta slíkt hið sama. Svo hló hann illirmislega
By Edda Rós, February 16, 2009 @ 11:06
Well fyrir Jorrit hefði ég sko örugglega bara þýtt bókina fyrir hann… Hann var nebblilega alltaf að gefa mér blóm :$ (embarrased smile ef það kemst ekki til skila) og gefa mér gullhamra einsog að ég væri íslenskasta konan sem hann hefði hitt og rauðhærð í eðlinu…
Hann er líka miklu gamlari en ég…
By Edda Rós, February 16, 2009 @ 11:07
Jésúss, ég hef aldrei séð þessa mynda af mér fyrr, ætli það sé útaf því að ég skipti um email fyrir tilkynningarnar mínar?
By Álfhildur Eiríksdóttir, February 17, 2009 @ 14:10
Mér sýnist þú bæði gömul og barnaleg á nýju tilkynningamyndinni þinni