erfið vika (ekki fyrir viðkvæmar sálir)

Mér hefur liðið betur. Ég fór á barinn á föstudagskvöld, skemmti mér svona líka ljómandi vel. Vaknaði á laugardaginn með magapínu, tengdi það vitaskuld áfengisdrykkjunni. Svo leið og beið og ólíkt venjulegum þynnkum þá fór allt niður en ekki upp hjá mér og mér leið ekkert betur um kvöldið. Svo kom annar dagur og mér leið ennþá illa, kom í bylgjum – stundum leið mér ok en stundum bölvanlega. Mánudagur var lítið skárri og þriðjudagur eilítið skárri.

En ég var ekkert rosalega klár og fór í partý á þriðjudagskvöldið, 4. annar nemendur geta leyft sér svona hegðun ekki satt? (haha annað partý næsta miðvikudag) Ætlaði ekki að drekka mikið en stútaði þó einni rauðvínsflösku (haha já ég er svo klár eða þannig) og einum stubb (lítill bjór) og mér leið svo illa að ég fór snemma heim. Svaf í 7 tíma, kom Hrafnkel í leikskólann, svaf svo aðra 3-4 tíma og leið bölvanlega það sem eftir leið af degi. Núna er kominn fimmtudagur og mér líður ennþá illa, betur en í gær en samt illa.

Magaástandið hefur reyndar ekki verið alltaf bara niður, heldur líka aðeins upp þó er mér meira bara óglatt stundum en hef bara ælt 2x. Einnig er þetta ekki alltaf lekandi, stundum þvert á móti – en það sem er sameiginlegt með ástandinu er ónotatilfinning í meltingarfærunum. Ég ætti að fara til læknis en ég er alveg viss um að ef ég pannta tíma þá lagast þetta áður en ég hitti hann. Það er líka asnalegt og segja “mér er illt í maganum, stundum er mér óglatt, stundum er ég með niðurgang og stundum með harðlífi og já ég hef dottið í það 2x á innan við viku… hvað ætli sé eiginlega að mér?”

Anyway þá er ég ógeðslega þreytt, get engan vegin einbeitt mér (á að vera að gera einfalda javascript æfingu í skólanum), veit ekki hvort ég þarf að fara á klósettið eða ekki OG UMFRAM ALLT þá vorkenni ég mér agalega. Sérstaklega því að ég hef mestann tímann ekki getað vorkennt mér fyrir að vera veik því að þegar maður er veikur rétt eftir drykkju þá heitir það ÞYNNKA :-(

4 Comments

  • By mamma, March 12, 2009 @ 12:44

    Pantaðu tíma hjá lækni, ef það lagast áður þá er það gott. Harðlífi og niðurgangur til skiptis er ekki eðlilegt ástand. Þú getur verið með einhvern meltingarsjúkdóm eða s

  • By Elva, March 12, 2009 @ 17:39

    Já, ég er sammála mömmu. Ég hef td aldei verið með þynnku í 4 daga og kalla ég nú ekki allt ömmu mína í þeim efnum. Jújú, ég er nú sammála þér í því að það hafi kannski ekki verið það allra gáfulegasta að renna niður einni rauðvín við þessar aðstæður en samt…
    Og svo vorkenni ég litlu systur agalega og myndi knúsa hana, elda hafraseiði og passa barnið hennar ef ég gæti.
    Bara svo það sé á hreinu ;)

  • By Edda Rós, March 12, 2009 @ 18:13

    Iss þið eruð náttúrulega ótrúlega jarðbundnar og gáfulegar í ykkar ráðum. Annars líður mér aðeins betur núna en í morgun. Sé til á morgun hvort ég pannta tíma, þarf hvort eð er að muna eftir að pannta tíma hjá eyrnalækni fyrir Hrafnkel hávæðissegg.

  • By Dísa, March 13, 2009 @ 11:52

    vonandi líður þér betur Edda mín. Nú styttist í að ég komi yfir, kannski getum við reynt að hittast? Ég kem á föstudaginn og verð alveg fram á þriðjudag.

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.