Góðan tannlæknadag
Ég er bara heima með mömmunni minni núna, það er frí í leikskólanum og svo þarf ég að fara til tannlæknis í dag. Ég veit ekki alveg hvað þessi tannlæknir ætlar að gera en mamma segir að hann muni skoða tennurnar mínar svo að ég hef verið að æfa mig aðeins að opna betur munninn. Ég er líka búinn að vera rosalega þægur undanfarna daga þegar verið er að tannbursta mig.
Það var líka frí í leikskólanum í gær og þá fór ég í skólann hennar mömmu. Hún og Michelle voru með tölvurnar sínar í skrítnu stóru herbergi þar sem að ég gat leikið mér með bolta. Svo teiknaði ég, bjó til pakka og púslaði svolítið. Ég var rosalega duglegur.
Í skólanum hennar mömmu var líka mikið af fólki sem kom og talaði við mig, þó að ég þekkti það ekki neitt. Það fannst mér pínu óþægilegt. Svo í eitt skiptið kom maður til að vinna í sama herbergi og mamma og Michelle. Hann vildi mikið tala við mig en ég vildi sko ekki tala við hann svo að ég hunsaði hann algerlega. Mamma sagði að hann héti Lau og væri einn af kennurunum hennar en mér var sama, ég vildi ekki tala við hann. Ég gaf honum samt nokkra pakka, svo að hann væri ekki útundan.
Svo kom Kirsten líka aðeins til okkar, Kirsten er líka vinkona hennar mömmu og hún gaf mér sleikjó. Mamma sagði mér að segja takk og ég kom öllum á óvart og sagði “thank you”. Michelle var búin að segja það nokkrum sinnum við mig, hún kann nefnilega alls enga íslensku og ekki mikla dönsku.
Bólurnar mínar eru nánast allar farnar, það eru bara þessar allra stærstu sem eru ennþá. Mamma er eiginlega mjög undrandi á því hvað bólurnar fara hratt, hún man nefnilega eftir þegar hún var að vinna á leikskólanum á Íslandi hvað það voru mörg börn með bólur lengi lengi eftir hlaupabóluna. Það sést ekki á mér, nema fólk sé að leita að bólunum, að ég hafi verið með hlaupabólu.
Jæja bless í bili
Hrafnkell tannálfur
2 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Hrafnkell Myrkvi, March 6, 2009 @ 16:01
Ég fór með mömmu, fyrst þurftum við að bíða aðeins og við lásum bók um kanínur og úlf. Svo fór ég inn og það var allt svo skrítið inni hjá tannlækninum. Tannlæknirinn minn er kona sem notar klút yfir hárið einsog sumar mömmurnar í leikskólanum. Hún talaði fyrst við mömmu mína, spurði hana spurninga um hitt og þetta og á meðan talaði ég aðeins við aðstoðarkonuna. Svo fékk ég að hitta Ælling, sem er andarbangsi, og tannlæknirinn skoðaði tennurnar í honum. Hún fann samt engar tennur því að Ælling er bara itte bitte baby (svo eru bangsar líka ekki með tennur, en ég ætla ekki að segja tannlækninum það, ég sagði mömmu bara frá því þegar við komum út). Svo fékk ég að setjast í stólinn. Stóllinn er mjög skrítinn, hann leggst niður og þá er rosalega stórt ljós beint fyrir ofan mann. Ég var smá óöruggur þegar stóllinn var að leggjast en mamma minnti mig á að þessi stóll lítur svolítið út einsog stóllinn hennar Hjöddu ömmu og þá var ég aðeins sáttari. Svo þegar ég lá í stólnum þá sá ég marga bangsa, það var Lína langsokkur og margt fleira. Tannlæknakonan passaði líka að lýsa ekki í augun mín heldur bara inn í munninn minn, svo taldi hún tennurnar mínar og ég er með 20 tennur! Það eru sko alveg rosalega margar tennur. Hún skrifaði hjá sér að ég væri með frekar skakkt bit, sem þyrfti að fylgjast með þegar ég yrði eldri, hún vildi líka að næst þegar ég kæmi þá myndi mamma vita meira um tennurnar hans pabba. Mamma mundi nefnilega bara að pabbi væri með vandræðatennur.
En já svo burstaði hún tennurnar mínar með nýja tannburstanum mínum, sem ég fékk að eiga, og svo málaði hún á tennurnar með pínulitlum pensli einhverju gulu kremi. Ég var rosalega hugrakkur allan tímann. Svo fékk ég verðlaun í lokinn, ég valdi mér kisulímmiða.
Mamma var líka dugleg því að hún talaði dönsku allann tímann.
By Valdís, March 6, 2009 @ 16:44
Voðalega varstu duglegur! Það er einmitt mjög mikilvægt að hugsa vel um tennurnar sínar.