Komin heim
Við erum komin heim, fimmtudagurinn gékk fáránlega vel. Svo vel að ég sat um miðjan dag í eldhúsinu mínu og hugsaði hvað í andskotanum ég væri að gleyma að gera því að ég gæti bara ekki verið tilbúin.
En við semsagt flugum um kvöldið, keyrðum svo beint á Akureyrina og allt gékk einsog í sögu. Síðan þá erum við búin að kíkja í teiginn, eiga mjög góðan dag þar, koma á Akureyri og fara í afmælisveislu og bara almennt séð hafa það rosalega gott.
Það er mjög velkomið að geta slakað aðeins á eftir frekar stressaðar vikur í skólanum. Á morgun þarf maður samt að fara að vinna aðeins í verkefnum en það er ekki í dag heldur á morgun