*geisp*

Ég er búin að koma mér í smá vítahring. Ég vakna ógeðslega þreytt og úldin á morgnanna, kem syni mínum í leikskólann og svo annað hvort hef ég lagt mig en oftar (því að ég er svo þrjósk að ég vil ekki leggja mig á daginn) þá kem ég mér fyrir og horfi á eitthvað og jafnvel prjóna með (því að þá er þetta ekki alger leti sko). Svo líður dagurinn og mest lítið gerist (þarf svo mikið að prjóna sjáiði til), svo sæki ég Hrafnkel – er svona þokkaleg mamma þar til að hann þarf að fara að sofa, rembist við að sofna ekki við lesturinn og fer svo fram. Það sem gerist síðan frá 8-11 er að ég hressist við, verð full af orku og framkvæmdagleði. En þó, af tillitssemi við nágrannana, hef ég hemil á mér og fer yfirleitt í mesta lagi í smávægilegar framkvæmdir (einsog að vaska upp eða ganga frá einhverju) og svo fer ég í rúmið. Þegar þangað er komið er ég glaðvakandi og hress, svo að ég fer að lesa. Svo les ég og les og les þar til að ég hef ekki samvisku til að lesa meira, þá legg ég frá mér bókina og fer að hugsa. Eftir einhvern pirring yfir öllu þessu hugsi sofna ég svo allt of seint.

Í morgun kom það svo fyrir að við sváfum yfir okkur. Barnið svaf og ég virðist hafa bara slökkt á vekjaranum, þó ég muni svosem ekki eftir framkvæmdinni. Ég rumskaði þó kl 20 mín í 10 og fékk vægt taugaáfall – það er nefnilega mælst til þess að börn séu komin fyrir klukkan 9 á leikskólann. Úps… Þannig að ég rauk á fætur, dró barnið á fætur – klæddi það úr og í og rauk svo inn í eldhús til að græja nesti meðan barnið skreið undir mömmu sæng og sagði “ég er þreyttur, ég vil sofa meira, það er ekki kominn dagur”
Eftir smá þref tókst mér að sannfæra hann um að fara á fætur, það væri víst kominn dagur og allir væru farnir að sakna hans í leikskólanum – það sem setti punktinn yfir i-ið var loforð um kökusneið í morgunmat :-s En engu að síður tókst mér að græja hann (og mig svona nokkurnvegin) og koma honum út og í leikskólann á ca 30 mín, sem er að mínu mati nokkuð gott þar sem að samstarfviljinn hjá honum var ekki alveg með besta móti.

Svo fór ég í ikea og tiger og í linskuskoðun og svo fór ég heim til að ég myndi kannski hugsanlega hætta að eyða peningum. Þegar heim var komið þá fór ég í gegnum prjónadótið mitt og saumadótið mitt og endurraðaði svolítið og gekk svo frá hinu og þessu. Náði svo í Hrafnkel og við leiruðum og lituðum og horfðum svo (já eða hann horfði) á youtube  á meðan ég eldaði mat.

Núna verð ég bara að segja að ég er úrvinda svo að ég ætla að leyfa mér að horfa bara á eitthvað sniðugt, prjóna og jafnvel fá mér 1/2 rauðvínsglas (sem ég keypti í ikea)…

En að öðru… Núna erum við Þórður loksins farin að ræða eitthvað skiptingu á draslinu okkar, það eru reyndar bara nokkrir hlutir sem við erum nokkurnvegin búin að ákveða, ég mun fá rúmið, tölvuskjáinn (af borðtölvunni), góðu tölvuhátalarana og prentarann – en hann mun fá sjónvarpið (og meððí), stóru myndina í stofunni og sófasettið. Og það vekur upp spurninguna, hvað í ósköpunum á ég að gera við stofuna þegar bæði sófasettið og sjónvarpið verður horfið (núna er ég alls ekki að segja að ég vilji fá þessa hluti, er alveg viss um að þeir munu veita Þórði meiri ánægju en mér)? Ég er amk ekki alveg á því að fara að kaupa mér sófasett, amk ekki nýtt – spurning hvort að maður kíki á einhverja flóamarkaði eða eitthvað – en maður verður að geta boðið fólki uppá að setjast niður er það ekki? Svona ef ég geri ráð fyrir því að fá einhverja í heimsókn. Kannski maður saumi bara fullt af púðum og svo þegar fólk kemur þá segir maður bara “gjörðu svo vel, veldu þér púða og komdu þér vel fyrir á góflinu” hehe. Mig langar reyndar líka til að geta einhvernvegin boðið fólki uppá gistingu, en því væri hægt að redda með því að kaupa bedda í ikea eða vindsæng eða eitthvað.

En anyway það verður spennandi að sjá hvernig stofan verður þegar Þórður verður búinn að taka sitt – endar kannski bara þannig að Hrafnkell fái geggjað stórt leikherbergi ;-)

6 Comments

  • By Valdís, January 19, 2010 @ 22:23

    Tveir grjónapokar (sem þú saumar auðvitað sjálf) og málið er dautt ;-)

  • By Edda Rós, January 19, 2010 @ 22:37

    Ég gæti jafnvel saumað grjónasófa! hahaha ;-)

  • By Valdís, January 20, 2010 @ 09:17

    Ég sé það svo fyrir mér! Þegar einn stendur upp úr grjónasófanum, sígur annar lengra ofaní, verður allur skakkur og fínn. Þú myndir þurfa að leita að Hrafnkeli inni í sófanum svona þrisvar á dag.

  • By ella, January 20, 2010 @ 11:46

    Mér líst vel á að það skuli fást hálf rauðvínsglös í Ikea.

  • By Elva, January 20, 2010 @ 14:45

    Ég mæli með loppumörkuðum og bara ekkert vera að stressa sig á þessu. Þú verður búin
    ð fylla íbúðina upp í rjáfur áður en þú veist af, vittu til ;)
    Grjónapokarnir eru ágæt hugmynd. Amk verður svaka fjör hjá Hrafnkeli.

  • By ella, January 22, 2010 @ 03:07

    Tek undir með Elvu, hvort heldur sem um er að læða loppur eða flær. Fór í dag í Kynlega kvisti á Húsavík og dauðlangaði að missa mig í gömlum baukum. Fékk mér bara pínu smá. Flóamarkaðir í útlöndum finnst mér heillandi.

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.