Hlutirnir farnir að skýrast meira
Við Þórður teljum okkur vera nokkurnvegin búin að skipta draslinu okkar upp, næsta skref verða svo bílarnir og skuldir. En ég semsagt losaði mig við meira af dótinu í stofunni – það sem að verður eftir verður tölvuborðið mitt (sem er reyndar í svefnherberginu einsogstendur), tölvustóllinn, lítill billy skápur og svo eitthvað dót sem Hrafnkell á… Frekar tómlegt kannski hehe.
Þannig að ég þarf að finna einhverja sófalausn og svo vantar mig góða hugmynd fyrir það hvað ég á að gera við bækurnar mínar, ekki það að núna verður nóg af skápaplássi sko en ég vil hafa bækur uppi við – nenni ekki að þurfa að gramsa inni í skáp til að sjá hvaða bækur ég á. Ég er að spá í að kíkja á einn loppemarked um helgina, aðalega til að skoða (draslið hans Dodda er náttúrulega ennþá hérna) og sjá svona hvort að það sé eitthvað sniðugt þarna.
Einnig hef ég mjög verið að velta grjónapoka hugmyndinni hennar Valdísar fyrir mér, er alveg sannfærð um að það gæti verið mjög kósý ef að það sé vel gert og vel úthugsað. Það er bara svo erfitt að úthugsa þetta þegar maður hefur ekki fyllinguna og ég tími ekki að kaupa fyllingu fyrr en ég er alveg viss um það hvað ég er að gera. Ég er að hugsa um að græja grjónasófa en ég veit ekki hvort að ég ætti að gera stóran kodda (einsog fatboy) er og setja það svo þannig upp við vegginn að það sé nokkurnskonar sófi, eða hvort að maður ætti að gera kassa (semsagt kodda sem er með hliðar) og reyna að leggja það svo að það sé sófi, eða hvort að maður eigi að sníða áklæðið í L og þá hvort að bak og seta eigi að vera eitt stykki eða 2 stykki – eða hvort að þetta sé bara glötuð hugmynd yfirleitt.
Annars var ég að ræða við son minn um daginn og ég sagði honum að pabbi hans ætlaði að taka sófann okkar þegar hann kæmi aftur til Danmerkur og strákurinn var alveg sáttur við það, sá ekkert vandamál. Svo sagði ég honum að pabbi hans ætlaði að taka sjónvarpið og þá var HM ekki jafn sáttur, hann missti reyndar ekki stjórn á skapi sínu en hann reyndi eftir fremsta megni að benda mér á það að við þyrftum að eiga sjónvarp og að pabbi hans gæti bara fundið eitthvað annað sjónvarp því að við þyrftum að nota okkar sjónvarp. Honum leist ekkert á þá hugmynd mína að eiga ekkert sjónvarp – en reyndar er það kannski þetta ástfóstur hans við sjónvarpið sem veldur því að ég vildi alls ekki fá sjónvarpið og er mjög sátt við að Doddi taki það.
Annars er ég bara núna að dunda mér við að fara í gegnum allt draslið okkar, skipta í mitt – hans – Hrafnkell (sumt dót sem hann fær seinna bara einsog myndir af okkur Dodda saman osfr) og síðan óákveðið. Þar af leiðandi er heimilið í smá upplausn, pokar og drasl alls staðar en þetta verður þess virði þegar uppi er staðið. Ég vil nefnilega helst að þegar þar að kemur (sem er vonandi frekar fyrr en seinna – þó að ég átti mig alveg á því að Þórður verður að hafa einhvern stað til að setja draslið sitt á áður en hann tekur það) geti hann bara komið með fluttningaliðið sitt og gengið að öllu vísu. Já og einnig hef ég verið að dunda mér við að reyna að ákveða hvað ég ætla að kaupa mér þegar lín kemur, fyrst og fremst ætla ég að fá mér nýja og ábyrga tölvu (voða fín asus tölva sem ég hef í huga) og svo ætla ég að splæsa í nýja og meðfærilegri myndavél (og svo ætla ég líka að kaupa mér ný nærföt og…. og… og….)
Og svo það sem “mestu” máli skiptir er að þegar Doddi verður loksins kominn með húsnæði og það verða loksins komnar pabbahelgar þá ætla ég að halda feitt partý hérna
og ég get varla beðið eftir að það komist einhverjar dagsetningar á pabbahelgarnar svo að ég geti byrjað að skipuleggja það
5 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Elva, January 27, 2010 @ 20:39
Um að gera að nota tækifærið á meðan stofan er nokkuð auð. Meira pláss fyrir gesti og minni séns á skemmdum
By ella, January 28, 2010 @ 07:51
Í mínu ungdæmi reddaði fólk hillumálum með því að stafla ölkössum úr tré eða múrsteinum og fjölum. Ég sé mikið eftir ölkassahillunni minni sem ég málaði svo fínt og þjónaði sem hillusamstæða í mörg ár. Ég varð af með hana við skilnað. Veit ekki hversu gott aðgengi þú hefur að múrsteinum en þessir dönsku rauðu eru alveg kjörnir í bókahillur vegna þess að það er svo auðvelt að stilla þá saman við hæð bókanna. Ég er efins um grjónasófamálið, nokkuð viss um að Góðir hirðar og flóamarkaðir eru mun hagstæðari. Veit sonur þinn hvað það er auðvelt að horfa á sjónvarp í tölvu? Ég skal ekkert kjafta frá því.
By Edda Rós, January 28, 2010 @ 10:01
Já ölkassabókahilla er ekki svo vitlaus hugmynd – ég er nú í danmörku, ég hlýt að geta fundið múrsteina einhverstaðar.
En sjáiði ég er búin að laga þannig að núna kemur réttur fjöldi af athugasemdum upp
By ella, January 29, 2010 @ 02:31
Jahá, dugleg stelpa!
By Dísa, February 2, 2010 @ 18:23
úúúú mig langar í partý!!!