Kjúklingabaunasnakk (ala. Simbad á er.is)

  • Kjúklingabaunir (annað hvort úr dós eða þá þurrar sem þurfa þá að hafa legið í bleyti í amk hálfan sólarhring)
  • salt
  • krydd
  • Ólívuolía

Kjúklingabaunirnar (miðað við eina dós)  eru settar í poka með ca. 1tsk krydd (karrý, paprika, laukduft, hvítlauksduft, eða whatever) 1tsk salt (ég notaði maldon saltflögur sem ég muldi aðeins fyrst) og 1/2msk ólívuolíu (því að hún er hollari fita en venjuleg) og svo er allt hrisst vel saman. Þessu er svo jafnað á plötu og bakað í ca 20 mín (passið ykkur að fylgjast með því að þær brenni ekki við, þær eiga að verða svona vel tanaðar) við 220°c á blæstri.

Þetta er síðan bara borðað sem snakk, er kannski ekki eins gott og doritos eða þykkvabæjareitthvað EN er samt nokkuð gott :-)

2 Comments

  • By Valdís, February 26, 2010 @ 19:29

    Kannast við þetta úr danska. Alveg ágætt.

  • By Edda Rós, February 26, 2010 @ 20:05

    Já það er svosem margt í danska sem er sniðugt, enda hefur það mataræði reynst ágætlega fyrir þá sem eru með pcos. Mitt vandamál var að ég var alltaf svo ógeðslega svöng þegar ég reyndi þetta + nöldrið í Þórði var ekki upplífgandi…
    En vonandi fæ ég lyf sem að nær að hemja blóðsykursgeðveikina í mér aðeins á meðan ég er að sannfæra líkamann að ég sé ekki í svelti þó að ég sé ekki að borða milljón vond kolvetni á dag

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.