Hið ljúfa líf…
Við Hrafnkell erum nýkomin heim aftur eftir að hafa dvalið heima á Íslandi yfir páskana. Íslandsferðin var mjög róleg og góð, það eina sem kastaði smá skugga á allt var allur veturinn sem kom – en við Hrafnkell vorum eiginlega bæði komin með nóg af vetri og komin í smá vorfíling áður en við fórum til Íslands – og fólk var með eindæmum latt og lítið um framtakssemi.
Þegar við lenntum hérna í Kaupmannahöfn – eftir ágætis flug – var veðrið hérna einsog best verður á kosið. Það var tiltölulega lygnt og hlýtt (15°c) – hérna er sko vorið greinilega komið. Það syngja fuglar, grasið er grænt, blóm skjóta upp kollinum og rómantíkin í dýralífinu er allsráðandi (sbr. froskarnir í kirkjugarðinum og ljónin í dýragarðinum hehe).
Þegar veðrið er svona gott getur maður ekki annað gert en að vera bjartsýnn og jákvæður. Þar fyrir utan virðast peningamálin hjá mér loksins vera eitthvað að ganga, lín hefur samþykkt mig sem móður hans Hrafnkels osfr. Verkefnaskil í skólanum eru síðan þar að auki ótrúlega dreifð þannig að það ætti að vera lítið mál að láta allt ganga upp – amk með smá skipulagi.
Við Hrafnkell vinnum hægt og rólega að því að taka uppúr töskum og ganga frá, stefnan er að vera búin að því áður en við þurfum að fara eitthvað annað hehehehe
4 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By P, April 18, 2010 @ 21:28
Hæ. Það var ótrúlega tómlegt í kotinu þegar þið voruð farin.
Við söknum ykkar.
Kveðja
By Hrafnhildur, April 21, 2010 @ 21:46
Gaman verður að sjá hvort þið verðið búin að taka upp úr töskunum áður en ég kem í maí ;o)
By Edda, April 21, 2010 @ 23:53
Hurru ótrúlegt en satt þá er ég búin að taka uppúr töskunum – en það er samt ekki alveg allt komið inn í skáp hehe. Það er ágætis fatahrúga í rúminu mínu (kosturinn við að vera ein í þokkalega stóru rúmi hehehe)
By Hrafnhildur, April 23, 2010 @ 22:54
hehehe já ég hendi því þá bara inn í skáp þegar ég kem svo ég komist fyrir í bólinu hjá þér