APRIL 19TH, 2009
By EDDA RóS
Við erum komin heim til Kaupmannahafnar. Flugvélin var ekki lent þegar Hrafnkell fór að tala um að hann vildi endilega fara aftur í heimsókn til ömmu og afa, brúnin lyftist þó eilítið þegar við fórum að tala um allt sem hann gæti sagt Amiru, og hinum krökkunum í börnehaven, frá því sem hann hafði gert í páskafríinu. En svo kom babb í bátinn, hann fattaði að Amira talar ekki íslensku og hann kann ekki að segja frá öllu á dönsku, hvernig segir maður td sundlaug, heitur pottur og páskaegg? Þetta olli smá áhyggjum en við komumst örugglega yfir það.
En já við komum til Hveragerðis á föstudagskvöld, fengum gistingu hjá Frosta og Sonju. Þar var auðvitað gott að vera, einsog allstaðar annarsstaðar sem við höfum verið um páskana. Gylfi, Hrafnkell og Kristín voru strax góð að leika sér öll saman þrátt fyrir mikinn aldursmun (8 ára, 3,5 ára og 9 mánaða). Þarna var Hrafnkell líka búinn að finna “litla barn” sem var bæði lítið og vitlaust og skemmtilegt! Ekki alveg jafn leiðinlegt, og grenjar ekki jafn hátt. Hann komst reyndar að því fljótlega að hún var ekki gallalaus, heldur var hún bæði of lítil og vitlaus til að vita að maður má ekki meiða aðra og svo varð maður alltíeinu að passa upp á að hún væri ekki að éta dótið mans. En heilt yfir þá náðu þau þrjú vel saman.
Við áttum svo bæði góða stundir með Frosta og Sonju og svo aftur góðar verslunarstundir með Hrafnhildi í gær.
En svo í dag þá skiluðum við bílnum, fórum út á völl, flugum heim, borðuðum kvöldmat, svæfðum barnið og erum núna bara að slappa af. Það var notalegra en ég hélt (miðað við “Íslandsheimþránna” sem hefur hrjáð mig undanfarna daga) að koma hingað heim. Engu að síður nenni ég engan vegin að takast á við skólann og að koma sér aftur inn í venjulega rútínu *dæs* en þetta hefst einhverntíman. Ég hugsa að morgundagurinn verði erfiðastur og svo jafni sig flest all.
JANUARY 29TH, 2009
By EDDA RóS
Ég er þreytt, alveg ótrúlega þreytt eitthvað. Það tekur á að gera ekki neitt að viti
Annars var ég að fá ábendingu um nám, hérna í Köben, sem ég gæti farið í sem framhald að margmiðlunarhönnuninni – og það endar í batchelor! Ég veit, þvílíkt menntasnobb í gangi en mig langar í batchelor gráðu. Mig langar reyndar til að fá einhverntíman meira en það en ætli það sé ekki best að taka þetta í þrepum bara.
Ég er búin að vera að vinna að heimasíðunni minni en einsog fólk segir, góðir hlutir gerast hægt. Sérstaklega þegar maður er jafn gleyminn og ég og man sjaldan eftir að gera save og svo hrinur forritið og nokkra klst vinna hverfur. Þá gerast góðir hlutir mjööööög hægt. Líka þegar forritin gera ekki það sem þau eiga að gera. En það er ekki einsog maður sé með eitthvað deadline, þetta er meira svona show off hvað maður kann að gera – ef manni myndi einhverntíman detta það í hug að sækja um vinnu einhversstaðar.
Það dó einn fiskur í fiskabúrinu, ég held að hann hafi bara verið gamall eða eitthvað – en amk þá dó hann og svo þegar ég ætlaði að fiska hann uppúr þá var búið að borða hann mest allan. Ég lét hann þá bara vera og núna er hann horfinn. Ég veit svosem ekki hversu hollt það er fyrir félaga hans að éta hann en amk þá hvarf hann mjög hratt. Það merkilega er að daginn eftir það þá fylltist búrið af sniglum, svo mig grunar að það hafi verið sniglaæturnar mínar sem gæddu sér á honum.
Hrafnkell er búinn að vera í vondu skapi undanfarið, hann vill ekki fara í leikskólann og í dag vildi hann ekki heldur koma heim. Hann er algerlega öfugsnúinn, ef ég segi að eitthvað sé rautt þá er það blátt. Hann er víst líka svona í leikskólanum, er reiður útaf því að einhver leikur sér að vitlausu dóti og með svoleiðis vesen. Í gær fórum við aðeins út að leika eftir leikskólann, svo þurfti hann að pissa. Ég vildi ekki leifa honum að pissa úti, það var kalt, svo að hann pissaði á sig frekar en að fara inn. Þegar hann var búinn að pissa á sig þá vildi hann fara inn en ég var svo ill að ég vildi ekki halda á honum (hlandblautum og fínum). Ég vona að hann skáni þegar Doddi kemur, mig grunar að þessi fýla sé tengd því að Doddi er ekki hérna en mig grunar samt líka að þegar Doddi kemur þá taki við önnur fýla – svona þú-varst-ekki-heima-þegar-þú-áttir-að-vera-heima-karldurgur-fýla. Hann fer nefnilega oft í fýlu við mann þegar maður kemur aftur.