Ég er alveg að koma til Íslands!
Það er nú aldreilis farið að styttast í að ég komi til Íslands, ég er farinn að hlakka mikið til. Mamma hefur bara smá áhyggjur af því að ég eigi aftir að sakna Amiru, hún er nefnilega langbesta vinkona mín í leikskólanum. Ég elska hana svo mikið að ég sakna hennar þegar ég er heima, ég vildi óska að ég mætti bara taka hana með heim. Ég sagði meira að segja við mömmu og pabba að ég ætlaði bara að skilja þau eftir hérna og taka Amiru með mér í staðinn til Íslands
Ég er búin að læra svoldið nýtt, mamma er svo glöð, ég er nefnilega búinn að læra að það sé stundum gott að kúra pínu í lúllinu á morgnanna. Mömmu og pabba finnst nefnilega rosalega gott að kúra svoldið og ég vakna alltaf svo snemma þessa dagana að stundum fæ ég að skríða upp í millið og bíða þar eftir því að það komi dagur (vekjaraklukkan hringi). Meðan ég býð þá tölum við mamma oftast saman um eitthvað sniðugt, pabbi heldur samt yfirleitt bara áfram að sofa.
Ég er líka farinn að telja upp að 13, amk þegar ég man eftir því að halda áfram eftir 10.
Um daginn þá kom vinkona hennar mömmu, hún Dísa, aðeins í heimsókn til okkar. Hún fékk að sofa á sófanum okkar og svo lékum við okkur aðeins. Hún gaf mér lítið páskaegg og harðfisk og flögur. Hún er sko líka vinkona mín núna – ég lofaði að ég kæmi að heimsækja hana þegar ég kæmi til Íslands.
Heyrumst seinna
Hrafnkell Íslandsfari