Pönnukökur – úr gulu bókinni, mín útgáfa
Það eru ansi margir sem að slumpa bara þegar þeir hræra í pönnukökudeig, mér finnst það aðdáunarvert en ég er engu að síður manneskja sem get ekki slumpað í bakstri. Get það hugsanlega í eldamennsku en er samt almennt séð ekki mikil slump-manneskja. En þar sem að ég slumpa ekki í pönnukökubakstri þá þarf ég auðvitað að hafa uppskrift og þá er nú heppilegt að ég á bestu pönnukökuuppskrift í heimi (hef prufað eina aðra og þó að hún væri ágæt þá var hún ekki rétt hehe) og hérna kemur hún:
- 2 1/2 dl hveiti
- 1/2 tsk lyftiduft
- (1/2 msk sykur) ég sleppi sykrinum oftast þar sem að hann veldur því að það eru meiri líkur á því að pönnukökurnar festist við pönnuna ef maður notar sykur, einnig borða ég pönnukökur ansi oft bara upprúllaðar með sykri. Það er í alvörunni alger óþarfi að hafa sykur í deginu.
- 2 egg
- 4 dl mjólk (nýmjólk er best, þeim mun feitara sem degið er, þeim mun minni líkur á að kökurnar festist við pönnuna)
- 1/2 tsk vanilludropar (ég reyndar nota oft aðeins meira, eða skipti þessu út fyrir vanillusykur þar sem að hann er miklu ódýrari hérna í baunaveldi)
- 25 gr smjör (eða smjörlíki eða 2 msk matarolía, ég persónulega nota alltaf smjör. Já og bæði smjör og smjörlíki eru betri en olía, again vegna þess að það dregur úr líkunum á því að kökurnar festist við pönnuna, og einsog ykkur grunar sennilega núna þá þoli ég ekki þegar það gerist)
Settu smjörið á pönnuna og kveiktu undir, ekki setja samt á allra heitasta strauminn því að þá er hætt við að það brenni við og verði ógeðslegt.
Blandaðu saman öllum hráefnunum (nema smjörinu, obviously, þar sem að það er upptekið á pönnunni), það getur verið gott að sigta þurrefnin fyrst – það dregur úr líkunum á því að allt fari í kekki. Ef maður er svo óheppinn að allt fer í kekki þá er alltaf hægt að láta blönduna fara í eina ferð eða svo í gegnum sigti. En já setja allt saman í skál og blandað vel saman. Svo þegar allt er vel blandað saman og smjörið bráðnað þá er því hrært saman við.
Svo bakar maður pönnukökur úr deginu