Geðveik eplakaka
Ég fékk mikla eplakökulöngun í dag svo ég ákvað að leita á netinu og finna eitthvað sniðugt og ég fann þessa:
- 125gr smjör
- 125gr sykur
- 1 egg
- 125gr hveiti
- 2tsk lyftiduft
- 2-3 epli (ég notaði 2 epli og eina peru – ofsa gott)
- kanilsykur
Sykur og egg þeytt vel saman, smjörinu bætt út í (og hitaði það aðeins upp svo að það væri nógu lint til að nota með þeytaranum í græjunni minni) og blandið vel saman. Hrærið svo hveitinu og lyftiduftinu hægt saman við. Deigið er sett í mót og eplin (og peran) skorin niður, uppskriftin segir í þunna báta en ég skar þetta abra niður í litla bita – mér var svosem sama þó að þetta væri ekkert of fallegt. Eplunum (og perunni) raðað ofan á deigið og svo stráð vel að af kanisykri yfir.
Bakað við 175° (blæstri) í hálftíma (og þá er hún frekar blaut, margir myndu baka hana lengur).
Svo er mælt með að borða hana heita með rjóma eða ís… Við áttum engin svoleiðis dýrindi en það hindraði okkur ekki í því að borða alltof mikið, alltof hratt