JUNE 25TH, 2009
By EDDA RóS
Ég keypti sápukúluglas fyrir Hrafnkel um daginn. Hann, náttúrulega bara þriggja ára, var fljótur að hella úr almennilegu sápukúlusápunni svo að ég varð að fara að brugga sápukúlusápu. Uppþvottalögurinn okkar var ekki alveg að standa sig svo að ég ákvað að reyna að finna betra ráð.
Uppskriftin sem ég fann var töluvert nákvæmari en ég slurkaði bara
ca. 3 hlutar vatn
ca. 2 hlutar uppþvottalögur
ca. 1 síróp
Þetta er ekki jafn gott og upprunalegi sápukúlulögurinn en töluvert mikið betra en bara eintómur uppþvottalögur, spurning hvort að það skipti ekki líka máli að hafa réttan uppþvottalög og rétt síróp (ég notaði bara venjulegt, ljóst síróp en uppskriftin sagði hlynsíróp og það er töluvert öðruvísi)
JUNE 25TH, 2009
By EDDA RóS
Ég hef nokkrum sinnum tekið þá drastísku ákvörðun að vaxa á mér leggina. Einu sinni fór ég bara á stofu og lét einhverja konu sjá um þetta og það var fínt, vont en fínt. Hin skiptin hef ég asnast til að kaupa hinar og þessar tegundir af heimavaxi og svo reynt að sjá um þetta sjálf. Það er bæði vont og erfitt – og aðalega erfitt því að þetta er svo vont.
En ég rakst á uppskrift af “vaxi” (ég held reyndar að þetta kallist sugaring og er mun líkara sírópi eða karamellu heldur en vaxi) á netinu og ég ákvað að prufa – hráefnin eru ódýr og auðvelt að nálgast þau svo að það versta væri að ég myndi gefast upp og skola þessu niður. En þetta var langbesta og sársaukaminnsta vax sem ég hef prufað. Það var ekki bara sársaukaminnst heldur tók það hárin betur en öll keyptu heimavöxin sem ég hef prufað.
Uppskriftin er svona:
ca 150gr sykur
2 msk sítrónusafi (uppskriftin segir úr belg en ég kreisti bara sítrónu og það var ca 2 msk úr 1/2 sítrónunni)
2 msk vatn
Sett í pott og á vel heita eldavélahellu. Hrært í reglulega. Þegar blandan er farin að bulla aðeins, farið að koma smá “froða” ofan á, þá á að lækka á hellunni og láta þetta malla þar til að það er orðið gullið á lit. Þá er bara að taka pottinn af hellunni og láta þetta kólna niður í þægilegan hita (en ekki of kallt því að þá er erfiðara að vinna með þetta).
Bera á lappirnar, skella bómullarefnisræmu ofan á og rífa hárdraslið af. (bara svona einsog með venjulegt vax). Þetta þrífst af með hreinu vatni svo að þú þarft ekki að vesenast með einhverjar olíur eða hreinsiefni til að hreinsa restarnar af vaxinu af. Einnig er hægt að skola ræmurnar í vatni og nota þær aftur (þegar þær hafa þornað auðvitað).